Eftir einn... Ei aki neinn

Ölvunarakstur og akstur undir áhrifum lyfja og vímefna er ein algengasta orsök slysa í umferðinn, þar á meðal banaslysa. Ölvunar-, lyfja- og vímuefnaakstur er lögbrot, sem tekið er á með sektum og sviptingu ökuleyfis til lengri eða skemmri tíma. Á þessari síðu er að finna upplýsingar um lög og reglur og fleira sem tengist ölvunar- og vímuefnaakstri. Einfaldasta leiðin til að forðast refsingu fyrir slíkan akstur er auðvitað sú að aka aldrei eftir að hafa drukkið áfengi eða neytt lyfja eða vímefna. Sú regla getur forðað óþarfa fjárútlátum og óþægindum og óþarfa slysi

Ölvunarakstur

Það mun aldrei vera til réttlæting fyrir ölvunarakstri!

Algengar afsakanir sem ökumenn nota þegar þeir, skertir athygli og viðbragðsflýti, setjast undir stýri og aka undir áhrifum áfengis.
Ég er nýbúin(n) að borða svo mikið... Matur í maga dregur það lítið úr áhrifum að þrátt fyrir að hafa borðað mat skaltu gera ráð fyrir því að áfengi hafi letjandi áhrif á athygli þína og dómgreind.
Það er svo langt síðan ég drakk síðasta drykkinn! Langur tími þarf að líða frá því að þú neyttir áfengis til að vissa sé fyrir að áhrif þess gæti ekki lengur. Jafnvel næsta dag eru miklar líkur á að enn gæti alkóhóls í blóði.
Ég drakk svo lítið! Einn drykkur er nóg til að hafa áhrif á getu þína til að aka og á hæfni til að bregðast við hættu.
Ég er að fara svo stutta vegalengd! Slys verða, jafnvel þótt þú farir stutta vegalengd. Flest slys eiga sér stað á vegalengd sem er innan við 3 km frá upphafsstað.
Ég keyrir hvort eð er hægt og varlega! Það skiptir litlu hvað þú vandar þig við aksturinn, því dómgreind þín og öll sú hæfni sem þarf að vera í lagi við akstur er skert.

Staðreyndir um ölvunarakstur

Hægt að banna akstur þótt áfengi mælist minna en 0.5%

Samkvæmt umferðarlögum má enginn vera undir áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna við stjórn vélknúins ökutækis og geta sektir vegna ölvunaraksturs numið allt að 350 þúsund krónum og allt að 5 ára sviptingu. Ef lögregla mælir áfengi í öndunarprófi ökumanns hefur hún heimild til að banna viðkomandi að halda áfram akstri jafnvel þótt magn áfengis mælist undir refsimörkum sem eru 0,5 %. Þetta undirstrikar það að eftir einn drykk má ekki aka!

Viðbragðstími lengist og sjónsvið þrengist

En af hverju fer akstur og áfengi ekki saman? Áfengi lengir við- bragðstíma ökumanns og dregur úr hæfni hans til að bregðast rétt við aðsteðjandi hættu. Einnig minnkar hæfileikinn til að meta fjarlægð og hraða rétt. Ökumaður sem er undir áhrifum áfengis hefur þrengra sjónsvið. Hann á erfiðara með að meta hættur í jaðarsjónsviði og getur því ekki brugðist eins örugglega við þeim.

Þú getur setið uppi með allt tjónið

Ef þú átt þátt í umferðarslysi og áfengi mælist í blóðinu áttu það á hættu að tryggingafélagið geri þig ábyrgan fyrir öllu tjóni sem af hegðun þinni hlýst - jafnvel þótt mælanlegt magn áfengis sé mjög lítið. Þetta getur gerst jafnvel þótt þú hafir ekki valdið slysinu.

AMFETAMÍN, KÓKAÍN, ALSÆLA (ecstasy, e-pilla, MDMA)

Örfandi efni

Þetta eru örvandi efni sem geta haft afar slæm áhrif á aksturshæfni. Örvandi efni valda því að ökumaður finnur síð- ur til þreytu á meðan hann er undir áhrifum. Þegar áhrifin dvína má búast við að ökumaður verði þreyttur og sljór og beini ekki athygli að akstrinum.
Þetta eru örvandi efni sem geta haft afar slæm áhrif á aksturshæfni. Örvandi efni valda því að ökumaður finnur síð- ur til þreytu á meðan hann er undir áhrifum. Þegar áhrifin dvína má búast við að ökumaður verði þreyttur og sljór og beini ekki athygli að akstrinum.

Sérstök áhrif örvandi efna geta verið:

Hraðakstur
Óútreiknanleg hegðun í akstri of mikið álit á eigin getu áhættuhegðun
Of mikið álit á eigin getu
Áhættuhegðun
Vanmat á líkamlegri þreytu

Sérstök áhrif örvandi efna geta verið:

Þreyta og syfja
Hætta á að sofna undir stýri
Áhættuhegðun
Kannabis
Neytendur kannabisefna halda iðulega að þeir séu öruggari ökumenn ef þeir eru undir áhrifum af því að þeir aki hægar, þetta er rangt. Kannabisefni breyta tíma- og fjarlægðarskyni þannig að önnur ökutæki sýnast vera nær en þau eru í raun.

Sérstakar afleiðingar af að aka undir áhrifum kannabisefna geta m.a. verið:

Lengri tími fer í að taka ákvarðanir
Viðbragðstími lengist
Mat á tíma og fjarlægð verður ónákvæmt
Akstur verður hægur og aksturshraði ójafn
Árvekni minnkar
Dómgreind og sjálfsgagnrýni minnkar

Sérstakar þakkir

15 látast eða slasast á hverju ári

Meðalfjöldi þeirra sem slasast alvarlega og látast í umferðarslysum á Íslandi af völdum ölvunaraksturs eru 15 manns á einu ári. Ölvunarakstur telst ekki til mannlegra mistaka. Einstaklingur sem veldur umferðarslysi vegna ölvunar þarf að bera byrðar vítaverðs kæruleysis alla sína ævi.

Afleiðingar

HVAÐ GERIST EF NÆST TIL ÖKUMANNS?

Akstur undir áhrifum vímuefna er ein af algengustu orsökum alvarlegra umferðarslysa. Sá sem ekur undir áhrifum vímuefna er talinn vera mörgum sinnum líklegri til að lenda í alvarlegu umferðarslysi en sá sem er ekki undir áhrifum. Margir ökumenn, sem hafa valdið öðrum alvarlegum meiðsl- um vegna aksturs undir áhrifum, segja það hafa verið þung- bærara en refsingin. Viðurlög við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna geta haft víðtæk áhrif fyrir ökumanninn.

Ökumaður, sem í fyrsta sinn er staðinn að akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna, getur búist við:

Sviptingu ökuréttinda
Að lenda á sakaskrá
Að tekið sé strangar á endurteknum brotum