Hvernig eru sektir við hraðakstri?
Sektir vegna hraðaksturs geta numið allt að 250 þúsund krónum og að auki allt að þriggja mánaða sviptingu ökuréttinda.
Sá sem ekur t.d. á 145 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/ klst. fær 210 þúsund króna sekt og verður sviptur ökuréttindum í einn mánuð.
Ef ökuhraði er langt yfir hámarkshraða er ökumaður sviptur ökuréttindum til bráðabirgða (sviptur á staðnum).
Sá sem ekur t.d. á 64 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 30 km/klst. mun verða sviptur ökuréttindum á staðnum.
Hvernig virkar punktakerfi?
Það eru ekki eingöngu sektir sem þú átt á hættu að fá vegna brota á umferðarlögum, þú getur líka átt á hættu að fá punkta í ökuferilsskrá. Þú færð t.d. einn punkt fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar, tvo punkta fyrir að aka gegn rauðu ljósi, einn punkt fyrir að vera ekki með öryggisbeltið spennt, einn punkt fyrir að aka gegn einstefnu og tvo punkta fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Punktarnir geta því safnast hratt upp.
Ökumenn með fullnaðarskírteini eru sviptir ökuréttindum þegar þeir ná 12 punktum.
Ökumenn með bráðabirgðaskírteini eru sviptir ökuréttindum þegar þeir ná 7 punktum
Ef þú ert punktalaus í 12 mánuði eftir að þú hefur fengið bráðabirgðaskírteini getur þú farið í akstursmat og fengið fullnaðarskírteini.
Ökumaður sem hefur fengið bráðabirgðaskírteini í fyrsta sinn, fær akstursbann þegar hann hefur fengið fjóra punkta eða fleiri. Akstursbannið gildir þar til ökumaðurinn hefur sótt sérstakt námskeið og staðist það.
Frekari upplýsingar
Ef þú vilt vita meira um sektir og punktakerfið þá getur þú smellt á hlekkina hér fyrir neðan.